Fótbolti

Stjóri Celtic: Leikmennirnir mínir eru vanir að spila fyrir framan þúsund manns

T'omas Þór Þórðarson skrifar
Ronny Deila ræðir við leikmenn sína fyrir æfinguna í kvöld.
Ronny Deila ræðir við leikmenn sína fyrir æfinguna í kvöld. vísir/andri marinó
Ronny Deila, knattspyrnustjóri Celtic, býst ekki við öðru en skosku meistaranir fari áfram þegar liðið mætir Stjörnunni öðru sinni í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar á Samsung-vellinum annað kvöld.

Celtic vann fyrri leikinn ytra, 2-0, þar sem Gunnar Nielsen, færeyski landsliðsmarkvörðurinn í liði Stjörnunnar, fór á kostum.

„Stjarnan er gott lið sem leggur mikið á sig, er skipulagt og erfitt að brjóta á bak aftur. Það spilaði aftarlega gegn okkur og því áttum við í vandræðum með að skora til að byrja með,“ sagði Deila við Vísi á Samsung-vellinum í kvöld.

„Stjarnan fékk nokkur ágætis færi í byrjun seinni hálfleiks. Þetta er fínt lið en við eigum að vera betri.“

Celtic gæti verið í enn betri stöðu fyrir seinni leikinn, en er Stjarnan nógu gott lið til að skora tvívegis á skosku meistarana?

„Öll lið geta skorað á okkur ef við spilum illa en ef við spilum vel eigum við góðan möguleika á að vinna leikinn,“ sagði Deila.

Ronny Deila og Craig Gordon, markvörður Celtic, á blaðamannafundinum í kvöld.vísir/tom
Vanir að spila á litlum völlum

Fyrsti leikur hans með Celtic-liðið var gegn KR á sama stað í forkeppni Meistaradeildarinnar í fyrra. Þá vann liðið nauman sigur á útivelli en pakkaði Vesturbæingum svo saman á Celtic Park. Telur hann betra að byrja á útivelli?

„Það er erfitt að segja til um. Ég bara veit það ekki. Oftast er betra að spila á útivelli fyrst en það er ekkert sem maður ræður við,“ sagði Deila sem telur að það verði ekkert mál fyrir sína stráka að gíra sig upp í leikinn fyrir framan 1.000 manna stúku í Garðabænum.

„Leikmennirnir eru vanir því frá Skotlandi. Við erum heppnir að vera með 50.000 manns á vellinum á hverjum leik en svo getum við spilað útileiki á móti liðum þar sem eru eitt til tvö þúsund manns,“ sagði Norðmaðurinn.

„Þeir eru vanir mismunandi leikvöngum og mismunandi völlum. Ég hef því engar áhyggjur af því.“

Aðspurður að lokum hvort hann telji að gervigrasið muni hafa áhrif annað kvöld sagði Deila: „Strákarnir hafa spilað leiki á gervigrasi og unnið þá alla. Við fáum líka að æfa á vellinum í kvöld. Góð lið vinna sama á hvaða velli þau spila.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×