Fótbolti

Ronaldo pirraður út í Benítez á æfingu | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. vísir/getty
Cristiano Ronaldo var ekkert í sérstaklega góðu skapi á æfingu Real Madrid í gær og lét reiði sína bitna á þjálfaranum, Rafael Benítez.

Portúgalska stórstjarnan var mjög ósátt þegar Benítez dæmdi á hann rangstöðu í marki sem hann skoraði á æfingu og brást Portúgalinn illur við.

Hann sendi Benítez skýr skilaboð með því að hrópa: „Vai Caralho,“ sem er portúgalskt blótsyrði.

Ronaldo hélt svo áfram og sagði að brot væru aðeins dæmd á portúgalska leikmenn liðsins á æfingu Real Madrid.

Vefsjónvarp spænska íþróttablaðsins AS náði þessu öllu á myndband en atvikið frá tveimur sjónarhornum má sjá hér að neðan.

Fram kom svo í frétt AS um æfinguna að Ronaldo var ennþá pirraður þegar Real-liðið fór í létta sláarkeppni áður en haldið var aftur til búningsklefa.

„Markmiðið er að koma boltanum undir slána, ekki þetta kjaftæði,“ er haft eftir Ronaldo í frétt AS.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×