Fótbolti

NBA-stjörnur litu við á æfingu hjá Barcelona | Myndband

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Leikmenn Barcelona í æfingarleik liðsins gegn LA Galaxy á dögunum.
Leikmenn Barcelona í æfingarleik liðsins gegn LA Galaxy á dögunum. Vísir/Getty
Nýkrýndi meistarinn Harrison Barnes, leikmaður Golden State Warriors og Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers, litu við á æfingu hjá Barcelona í vikunni en Barcelona er þessa dagana í æfingarferð í Bandaríkjunum.

Barcelona hóf æfingarferðina í Los Angeles þar sem Kobe Bryant var mættur að heilsa upp á leikmenn Barcelona en myndband af því má sjá hér fyrir neðan. Kobe er mikill áhugamaður um evrópska knattspyrnu eftir að hafa búið í Ítalíu um skeið er faðir hans lék í ítölsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik.

Þá var ferðinni haldið til San Fransisco þar sem Harrison Barnes leit við á æfingu og kenndi leikmönnum Barcelona meðal annars eitt og annað í körfubolta. Í myndbandinu má sjá miðjumannin Sergio Busquets spjara sig með boltann ásamt því að miðvörðurinn Gerard Pique setti niður langan þrist.

Spænsku meistararnir mæta enska stórveldinu Manchester United á Levi's Stadium í San Fransisco annað kvöld en leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og Stöð 2 Sport 2 HD.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×