Fótbolti

Real Madrid vann öruggan sigur á Inter | Sjáðu mörkin

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Spænska stórveldið Real Madrid vann auðveldan sigur á Inter í International Champions Cup en leik lauk í Guangzhou rétt í þessu og sáu Jese, Raphael Varane og James Rodriguez um markaskorunina.

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Real Madrid, gerði nokkrar breytingar á byrjunarliði sínu frá 4-1 sigrinum á Manchester City en stillti engu að síður upp sterku byrjunarliði. Gaf hann Jese tækifærið í fremstu víglínu en hann átti eftir að nýta tækifærið í leiknum.

Jese kom Real Madrid yfir um miðbik fyrri hálfleiks er hann stýrði fyrirgjöf Marcelo í netið af stuttu færi og var staðan 1-0 fyrir Real Madrid í hálfleik. Í seinni hálfleik bætti Varane við öðru marki Real Madrid þegar boltinn féll fyrir hann á miðjum teig með föstu skoti.

Besta mark leiksins kom hinsvegar undir lokin þegar kólumbíski miðjumaðurinn James Rodriguez gerði út um leikinn fyrir Real Madrid. Markið kom úr aukaspyrnu af 30 metra færi og átti Samir Handanovic í marki Inter lítinn möguleika.

Real leikur næst gegn AC Milan á fimmtudaginn en spænska úrvalsdeildin hefst eftir tæplega fjórar vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×