Fótbolti

Marcelo samdi við Real Madrid til 2020

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Marcelo hefur verið lengi hjá Real Madrid.
Marcelo hefur verið lengi hjá Real Madrid. vísir/getty
Brasilíumaðurinn Marcelo hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Real Madrid.

Marcelo hefur verið í herbúðum Real Madrid síðan 2007 en hann kom til spænska liðsins frá Fluminense í heimalandinu.

Marcelo hefur leikið 320 leiki fyrir Real Madrid og skorað 23 mörk.

Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna með Madrídar-liðinu, þ.á.m. spænsku deildina í þrígang, spænska Konungsbikarinn í tvígang og Meistaradeild Evrópu einu sinni.

Hann hefur leikið 39 landsleiki fyrir Brasilíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×