Þrír leikstjórnendur Dallas-liðsins allir fæddir á sama degi á sama ári Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júlí 2015 11:00 José Juan Barea, Deron Williams og Raymond Felton. Vísir/Getty
NBA-liðið Dallas Mavericks er búið að semja við leikstjórnandann Deron Williams sem hafði áður fengið sig lausan frá Brooklyn Nets. Koma Williams til Dallas býr til skemmtilega og nær örugglega einstaka staðreynd. Þetta þýðir nefnilega að þrír leikstjórnendur Dallas liðsins í dag eru allir fæddir á sama degi og halda allir upp á 32 ára afmælið sitt næsta sumar. Deron Williams fæddist 26. júní 1984 í Parkersburg í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum. José Juan Barea þekktur sem JJ Barea fæddist 26. júní 1984 í Mayagüez á Púertó Ríkó. Raymond Felton fæddist 26. júní 1984 í Marion í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum. Deron Williams var með 13,0 stig og 6,6 stoðsendingar að meðaltali með Brooklyn Nets á síðustu leiktíð. Þetta verður ellefta tímabilið hans í NBA-deildinni. Deron Williams gerði tveggja ára samning við félagið en hann spilaði með menntaskólaliði á Dallas-svæðinu áður en hann fór í University of Illinois. Raymond Felton kom til Dallas frá New York Knicks árið 2014 en hann var með 3,7 stig og 1,4 stoðsendingu að meðaltali á síðasta tímabili. Hann er á sínu síðasta ári af fjögurra ára samningi. JJ Barea spilaði með Dallas Mavericks í fyrra og einnig á árunum 2006 til 2011 en hann varð NBA-meistari með liðinu 2011. Barea var með 7,5 stig og 3,4 stoðsendingar að meðaltali á síðasta tímabili.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Sjá meira