Enski boltinn

Wenger: Höfum ekki boðið í Benzema

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir ekkert hæft í frétt The Sun í dag að félagið væri nú að undirbúa 40 milljóna punda tilboð í sóknarmanninn Karim Benzema hjá Real Madrid.

Madrídarfélagið er sagt viljugt að selja leikmanninn en í frétt The Sun er fullyrt að Arsenal muni ganga hart á eftir Frakkanum öfluga.

„Ég veit ekki hvaðan þessi frétt kemur en það er ekkert að gerast eins og málin standa nú,“ sagði Wenger á blaðamannafundi í morgun.

Annar Frakki, Olivier Giroud, hefur verið aðalsóknarmaður Arsenal en þeir Alexis Sanchez, Theo Walcott og Danny Welbeck hafa allir spilað í fremstu víglínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×