Paul Pierce og Doc Rivers sameinaðir á ný Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2015 17:15 Paul Pierce og Doc Rivers þegar þeir unnu saman í Boston. Vísir/Getty
Paul Pierce er ekkert að fara að leggja skóna sína upp á hillu á næstunni því þessi 37 ára gamli körfuboltamaður er búinn að gera þriggja ára samning við Los Angeles Clippers. Það má ekki skrifa undir samninginn fyrr en 9. júlí næstkomandi en Paul Pierce fær 10,6 milljónir dollara fyrir þessi þrjú tímabil eða 1,4 milljarða íslenskra króna. Paul Pierce spilaði með Washington Wizards á síðasta tímabili og það var mikill áhugi þar að fá hann til baka. Hann valdi hinsvegar frekar að snúa heim til Kaliforníu. Pierce fór í menntaskóla í Inglewood, sem er úthverfi Los Angeles, og þá er hann að hitta fyrir þjálfara sem hann þekkir vel. Doc Rivers þjálfaði Paul Pierce í níu ár hjá Boston Celtics frá 2004 til 2013 og þeir urðu NBA-meistarar saman 2008 þar sem Pierce var kosinn besti leikmaður lokaúrslitanna. Doc Rivers og Paul Pierce yfirgáfu báðir Boston sumarið 2013. Paul Pierce samdi við Brooklyn Nets og Rivers tók við liði Los Angeles Clippers þar sem hann er enn þjálfari. Los Angeles Clippers er með sterkt lið og líklegt til afreka á næsta tímabili og nú er liðið komið með reynslubolta í Paul Pierce sem er þekktur fyrir að spila best þegar mikið er undir. Paul Pierce er sextándi stigahæsti leikmaður NBA frá upphafi en hann er að fara að hefja sitt átjánda tímabil í NBA-deildinni.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Sjá meira