Tim Duncan spilar 19. tímabilið með San Antonio Spurs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2015 14:15 Tim Duncan. Vísir/EPA
Tim Duncan gaf það formlega út í gær að hann ætli að taka eitt tímabil enn með San Antonio Spurs í NBA-deildinni í körfubolta en Duncan er á eftir sínum sjötta meistaratitli. „Ég náði loksins að ræða við Gregg Popovich. Ég verð á gólfinu næsta tímabil," sagði Tim Duncan í viðtali við San Antonio Express-News. Þetta verður nítjánda tímabilið hans með San Antonio Spurs í NBA-deildinni. Það var búist við því að Duncan héldi áfram en Spurs er nú að reyna að sannfæra LaMarcus Aldridge, fyrrum liðsmann Portland Trail Blazers, um að semja einnig við liðið. Duncan, Gregg Popovich, Tony Parker og Kawhi Leonard voru allir á fundi með Aldridge á miðvikudagskvöldið. San Antonio Spurs er þegar búið að semja við Kawhi Leonard og Danny Green, Leonard fær 90 milljónir dollara fyrir fimm ár en Green 45 milljónir fyrir fjögur ár. Tim Duncan spilaði 28,9 mínútur að meðaltali í leik með San Antonio Spurs á síðasta tímabili en hann var með 13,9 stig, 9,1 frákast, 3,0 stoðsendingar og 1,08 varin skot að meðaltali sem eru flottar tölur fyrir 39 ára leikmann. Duncan komst í þriðja úrvalslið deildarinnar og er það í fimmtánda sinn sem hann er í einu af þremur úrvalsliðum NBA-deildarinnar. Duncan mun halda upp á fertugsafmælið næsta vor mögulega í miðri úrslitakeppni en hann spilaði sitt fyrsta tímabil með San Antonio Spurs 1997-98.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Sjá meira