Jordan spilar með Dallas Mavericks næsta vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2015 22:49 DeAndre Jordan. Vísir/EPA
DeAndre Jordan hefur ákveðið að yfirgefa Los Angeles Clippers og ætlar miðherjinn öflugi að semja við Dallas Mavericks. Bandarískir fjölmiðlar segja frá því í kvöld að Jordan muni skrifa undir fjögurra ára samning sem gefur honum 80 milljónir dollara í aðra hönd eða 10,6 milljarða íslenskra króna. Jordan ræður sjálfur hvort að hann klárar fjórða árið og gæti því aftur verið með lausan samning sumarið 2018. DeAndre Jordan hefur spilað með Los Angeles Clippers síðan að hann kom í deildina árið 2008 en hann lék með háskólaliði Texas A&M og er frá Texas. DeAndre Jordan var með 11,5 stig og 15,0 fráköst að meðaltali í leik í deildinni auk þess að verja 2,2 skot og hitta úr 71 prósent skota sinna utan af velli. Jordan var efstur í deildinni í bæði fráköstum og skotnýtingu og er þetta annað árið í röð sem hann afrekað það en það hafði ekki gerst síðan að Wilt Chamberlain náði því 1971-72 og 1972-73. DeAndre Jordan kemst nú út úr skugga Chris Paul og Blake Griffin sem eru stærstu stjörnur Los Angeles Clippers liðsins. Jordan var með 14,9 stig og 18,5 fráköst í leik í þeim fimmtán leikjum sem Griffin var ekki með á síðasta tímabili. Jordan er hinsvegar skelfileg vítaskytta en aðeibns 39,7 prósent víta hans rötuðu rétta leið á síðasta tímabili sem leiddi til þess að mörg lið stunduðu það að senda hann vísvitandi ítrekað á vítalínuna. "Við höldum að hann verði okkar besti leikmaður á komandi árum," sagði Mark Cuban, eignandi Dallas Mavericks, í viðtali við ESPN.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Sjá meira