Gasol verður áfram í Memphis | Gerði fimm ára samning Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júlí 2015 11:30 Gasol hefur verið í hópi bestu miðherja NBA-deildarinnar undanfarin ár. vísir/getty
Spænski miðherjinn Marc Gasol hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við NBA-liðið Memphis Grizzlies. Samkvæmt frétt AP-fréttastofunnar hefur Gasol staðfest þetta við spænska fjölmiðla. Samningur Gasols var runninn út en nú er ljóst að hann verður áfram í Memphis. Nýji samningurinn, sem gildir til ársins 2020, gefur Gasol rúmlega 100 milljónir dollara í aðra hönd. Samkvæmt frétt AP ræddi Spánverjinn ekki við önnur lið en Memphis. Gasol, sem er þrítugur, hefur leikið með Memphis frá árinu 2008 og verið lykilmaður í góðu gengi liðsins undanfarin ár. Síðasta tímabil var hans besta síðan hann kom inn í deildina en hann var með 17,4 stig, 7,8 fráköst og 3,8 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur. Frammistaða Gasols í vetur skilaði honum sæti í fyrsta úrvalsliði NBA, auk þess sem hann var valinn í stjörnulið Vesturdeildarinnar í annað sinn. Gasol var valinn varnarmaður ársins í NBA árið 2013 en þá komst Memphis alla leið í úrslit Vesturdeildarinnar þar sem liðið tapaði fyrir San Antonio Spurs. Memphis vann 55 leiki í vetur og komst í undanúrslit Vesturdeildarinnar þar sem Gasol og félagar biðu lægri hlut fyrir verðandi meisturum Golden State Warriors. Eldri bróðir Marcs, Pau Gasol, leikur með Chicago Bulls en hann hóf NBA-ferilinn með Memphis.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Sjá meira