Fótbolti

Marca: Casillas fer til Porto

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Spænska dagblaðið Marca heldur því fram að samningar séu í höfn á milli Real Madrid og Porto um kaup síðarnefnda félagsins á markverðinum Iker Casillas.

Casillas hefur verið á mála hjá Real Madrid síðan hann var níu ára gamall - í alls 25 ár. Samkvæmt Marca er von á staðfestingu þess efnis frá félaginu innan skamms.

Samkvæmt fréttinni verður Casillas kvaddur með viðhöfn á heimavellinum Santiago Bernabeu á föstudag. Þessi 34 ára kappi á að baki meira en 700 leiki með Real Madrid í öllum keppnum og 162 landsleiki með Spáni.

Hjá Porto fær hann áfram að spila í Meistaradeild Evrópu en líklegt þykir að Real Madrid muni fylla í skarð hans með því að kaupa David De Gea frá Manchester United.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×