Golden State jafnaði metin | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. júní 2015 07:21 Igoudala hefur verið besti leikmaður Golden State í úrslitaeinvíginu. vísir/getty
Golden State Warriors jafnaði metin í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar með 21 stiga sigri, 82-103, á Cleveland Cavaliers í fjórða leik liðanna í nótt. Sigurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir Golden State en það hefur aldrei gerst í sögu NBA að lið komi til baka eftir að hafa lent 3-1 undir í lokaúrslitum. Aðeins sex stigum munaði á liðunum fyrir 4. leikhluta en þá náðu gestirnir frá Oakland heljartökum á leiknum. Sóknarleikur Cleveland var lélegur en liðið skoraði aðeins tvær körfur í öllum lokaleikhlutanum. LeBron James var mun rólegri en í fyrri leikjum einvígisins og skoraði 20 stig - 21 stigi undir meðaltali hans í seríunni. Hann tók einnig 12 fráköst og gaf átta stoðsendingar.James hitti illa í nótt eins og liðsfélagar sínir.vísir/gettyRússneski miðherjinn Timofey Mozgov var stigahæstur í liði Cleveland með 28 stig en liðið fékk sama og ekkert framlag frá varamönnum sínum í leiknum. J.R. Smith misnotaði t.a.m. öll átta skot sín fyrir utan þriggja stiga línuna. Steve Kerr, þjálfari Golden State, setti Andre Igoudala í byrjunarliðið í fyrsta sinn í vetur og hann átti frábæran leik; skoraði 22 stig, tók átta fráköst og spilaði góða vörn á James. Stephen Curry skoraði einnig 22 stig fyrir Golden State og þá gerði Draymond Green 17 stig, tók sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar. Næsti leikur fer fram á heimavelli Golden State aðfaranótt mánudags.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Sjá meira