Sport

Óumdeilanlegur þungavigtarmeistari UFC krýndur í kvöld

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Velasquez (t.v.) og Werdum (t.h.). Gætu ekki verið ólíkari.
Velasquez (t.v.) og Werdum (t.h.). Gætu ekki verið ólíkari. Vísir/Getty
UFC 188 fer fram í kvöld þar sem þeir Cain Velasquez og Fabricio Werdum berjast. Sigurvegarinn í kvöld verður óumdeilanlegur þungavigtarmeistari UFC.

Cain Velasquez hefur verið þungavigtarmeistari UFC í tæp þrjú ár en ekkert barist síðan í október 2013. Meiðsli hafa hrjáð feril hans og var ástandið orðið svo slæmt að UFC bjó til svo kallaðan bráðabirgðartitil (e. interim title).

Um þann titil börðust þeir Fabricio Werdum og Mark Hunt í nóvember síðastliðnum. Þar fór Werdum með sigur af hólmi og munu því tveir meistarar mætast í kvöld. Aðeins annar getur staðið eftir sem óumdeilanlegur þungavigtarmeistari UFC.

Cain Velasquez kemur af mexíkönskum ættum en bardagarnir í kvöld fara fram í Mexíkó. Velasquez er frábær glímumaður sem hefur verið líkt við tortímandann þar sem hann hættir aldrei að pressa áfram. Auk þess er Velasquez með þol á við léttvigtarmann og fáir sem höndla hraðann og pressuna sem hann setur á andstæðinga sína.

Sjá einnig: Vélmennið Cain Velasquez

Fabricio Werdum er gerólíkur Velasquez. Hann er mikill grínisti og skemmtikraftur á meðan Velasquez er mun alvarlegri. Werdum er einn af allra bestu gólfglímumönnum veraldar og fáir sem kjósa að eiga við hann í gólfinu. Velasquez gæti þó verið einn af þeim fáu en báðir eru svart belti í brasilísku jiu-jitsu.

Werdum hefur á undanförnum árum tekið stórtækum framförum í sparkboxi eða frá því hann var rekinn úr UFC fyrir sjö árum síðan. Nánar má lesa um upprisu Werdum á vef MMA Frétta hér.

Bardaginn í kvöld ætti að verða æsispennandi viðureign tveggja ólíkra keppenda. Aðeins annar mun stíga úr búrinu sem óumdeilanlegur þungavigtarmeistari UFC.

UFC 188 verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en útsendingin hefst kl 2. Eftirtaldir fimm bardagar verða á dagskrá:

Titilbardagi í þungavigt: Cain Velasquez gegn Fabricio Werdum

Léttvigt: Eddie Alvarez gegn Gilbert Melendez

Millivigt: Kelvin Gastelum gegn Nate Marquardt

Fjaðurvigt: Yair Rodríguez gegn Angel Hill

Strávigt kvenna: Tecia Torres gegn Angela Hill 

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×