Fótbolti

Eiður Smári og Heimir sérfræðingar Stöðvar 2 Sports

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári vann Meistaradeildina með Barcelona árið 2009.
Eiður Smári vann Meistaradeildina með Barcelona árið 2009. Vísir/AFP
Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður íslenska landsliðsins og Bolton, og Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, verða sérfræðingar Stöðvar 2 Sports vegna úrslitaleiks Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.

Juventus og Barcelona mætast í úrslitaleiknum sem fer fram á Ólympíuleikvanginum í Berlín í Þýskalandi.

Eiður Smári er fyrrum leikmaður Barcelona og einn allra fremsti knattspyrnumaður sem Ísland hefur átt.

Útsending hefst klukkan 18.00 og leikurinn sjálfur 18.45.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×