Fótbolti

Dani Alves áfram hjá Barcelona til 2017

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alves í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardaginn.
Alves í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardaginn. vísir/getty
Dani Alves hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Barcelona, með möguleika á þriðja árinu.

Miklar vangaveltur voru um framtíð brasilíska bakvarðarins en hann var orðaður við fjölmörg lið, þ.á.m. Manchester United, Paris Saint-Germain og AC Milan.

Alves, sem er 32 ára, kom til Barcelona frá Sevilla 2008 og á sjö árum hjá félaginu hefur hann fimm sinnum orðið spænskur meistari, þrisvar sinnum bikarmeistari og þrívegis unnið Meistaradeild Evrópu, auk annarra titla.


Tengdar fréttir

Arftaki Dani Alves fundinn

Nýkrýndir Evrópumeistarar Barcelona hafa fest kaup á varnarmanninum Aleix Vidal frá Sevilla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×