Íslenski boltinn

Fylkir náði í stig á Akureyri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sandra Sif Magnúsdóttir í leik með Fylki.
Sandra Sif Magnúsdóttir í leik með Fylki. Vísir/Vilhelm
Fyrsta leik kvöldsins er lokið í Pepsi-deild kvenna. Þór/KA og Fylkir gerðu 1-1 jafntefli á Akureyri.

Sandra María Jessen kom heimamönnum yfir í lok fyrri hálfleiks en Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði dýrmætt jöfnunarmark Fylkis á 89. mínútu leiksins.

Stigið var kærkomið fyrir Fylki sem hafði tapað þremur deildarleikjum í röð. Þór/KA er í öðru sæti með tíu stig en Fylkir í því sjöunda með fjögur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×