Kristján: Hegðun FH-inga til skammar | Máni fékk rautt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. maí 2015 21:54 Kristján og Máni á hliðarlínunni í kvöld.. vísir/ernir
Kristján Guðmundsson segir að hans menn í Keflavík hafi verið ósáttir við hegðun FH-inga eftir að varnarmaðurinn Insa Fransisco fékk rautt spjald fyrir brot á Böðvari Böðvarssyni. „Við vorum kannski ekki beint ósáttir við rauða spjaldið,“ sagði Kristján sem var dágóða stund í búningsklefa Keflavíkur áður en hann kom út og veitti fjölmiðlamönnum viðtal. „Ég hef lúmskan grun um að rauða spjaldið hafi verið réttur dómur. Við erum hins vegar nokkuð ósáttir við framkvæmdina á leiknum og það sem gerist eftir brotið,“ sagði hann en stuttu eftir að Insa fékk rautt var Þorkeli Mána Péturssyni, aðstoðarþjálfara Keflavíkur, vikið upp í stúku. Kristján segir að bæði leikmenn og starfsmenn vallarins hafi gert aðsúg að leikmönnum Keflavíkur. „Það er til skammar,“ segir hann. Þjálfarinn segist ánægður með frammistöðu sinna manna í kvöld. „Við gáfum FH leik í 70 mínútur. Við fengum á okkur nokkuð mörg færi en sköpuðum okkur færi líka.“ „Við vissum að til þess að fá eitthvað úr leiknum yrðum við alltaf að skora, enda eru þeir það sterkir fram á við. Það var alveg klárt að það yrði erfitt að halda aftur af þeim þó svo að okkur tókst það í 70 mínútur.“ Kristján segist sjá miklar framfarir á leik sinna manna í kvöld eftir tapleikinn gegn Víkingi í fyrstu umferð. „Þetta var mörgum skrefum betra en í fyrsta leiknum. Það vantar enn Hólmar Örn og það verður gott að fá hann inn. Við fengum útlendingana líka of seint inn og það er að gera okkur erfitt fyrir.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Fótbolti Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Enski boltinn „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Í beinni: KR - Fram | Rúnar snýr aftur á Meistaravelli Íslenski boltinn Arnar Pétursson átti sitt besta hlaup í Berlín Sport Fleiri fréttir Í beinni: Þróttur - Þór/KA | Þróttarar í leit að fyrsta sigrinum Í beinni: FH - Breiðablik | Kapphlaupið um titilinn heldur áfram Í beinni: KR - Fram | Rúnar snýr aftur á Meistaravelli Í beinni: Vestri - HK | Risaleikur fyrir vestan „Sannfærður um að við séum að einblína á röngu hlutina“ Vonbrigða tímabil Vals getur skorið úr um hvar titillinn endar Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó KR upp um deild og Haukar tóku við bikarnum „Þetta er bara besta móment lífs míns“ Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn „Ég bara hágrét í leikslok“ „Þetta endar eins og þetta á að enda“ Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Utan vallar: Ungt og leikur sér Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Fram fær liðsstyrk úr Breiðholti „Þetta er dýrmætur tími og maður finnur hvað þetta skiptir mann miklu máli“ Gísli Gottskálk verðlaunaður með nýjum samningi Hermann hættur með ÍBV Bestu guttarnir í Bestu deild karla Birkir á leið til Vals á nýjan leik Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn