Lærisveinar Rúnars lögðu norsku meistarana Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. maí 2015 18:00 Rúnar Kristinsson og lærisveinar hans unnu sinn annan leik í norsku úrvalsdeildinni í dag. vísir/valli
Sex leikir fóru fram í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lærisveinar Rúnars Kristinssonar í Lilleström lögðu Noregsmeistara Molde að velli á heimavelli, 2-1. Erling Knudtzon skoraði bæði mörk Lilleström á þriggja mínútna kafla í seinni hálfleik en þetta var annar sigur liðsins á tímabilinu. Finnur Orri Margeirsson var að venju í byrjunarliði Lilleström og lék allan leikinn. Árni Vilhjálmsson var ekki leikmannahópi liðsins. Jón Daði Böðvarsson skoraði seinna mark Viking sem vann 0-2 sigur á Haugesund á útivelli. Þetta var fyrsta mark Selfyssingsins á tímabilinu en hann kom inn á sem varamaður á 64. mínútu. Indriði Sigurðsson og Steinþór Freyr Þorsteinsson voru báðir í byrjunarliði Viking en Björn Daníel Sverrisson er frá vegna meiðsla. Guðmundur Kristjánsson og Matthías Vilhjálmsson voru í byrjunarliði Start sem gerði 1-1 jafntefli við Bodö/Glimt á heimavelli. Bæði mörkin komu á fyrstu átta mínútum leiksins. Ingvar Jónsson sat allan tímann á varamannabekk Start sem er í 12. sæti deildarinnar með níu stig, jafnmörg og Lilleström. Daníel Leó Grétarsson sat allan tímann á bekknum þegar Álasund og Sarpsborg 08 skildu jöfn, 2-2. Grindvíkingurinn ungi spilaði fyrsta leik Álasunds í deildinni en hefur ekki komið við sögu síðan þá. Aron Elís Þrándarson er enn á sjúkralistanum. Þá vann Stabæk stórsigur á Sandefjord, 4-0, og Odd bar sigurorð af Strömsgodset með tveimur mörkum gegn engu. Hannes Þór Halldórsson og félagar í Sandnes Ulf unnu 6-1 stórsigur á Fredrikstad á heimavelli í 1. deildinni. Hannes stóð allan tímann milli stanganna hjá Sandnes sem er í 3. sæti deildarinnar.Úrslit dagsins í norsku úrvalsdeildinni: Lilleström 2-1 Molde Haugesund 0-2 Viking Start 1-1 Bodö/Glimt Álasund 2-2 Sarpsborg 08 Stabæk 4-0 Sandefjord Odd 2-0 Strömsgodset
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira