Fótbolti

Sjáðu rimmu Evra og leiðinlega boltastráksins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Real Madrid og Juventus eigast nú við í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.



Real Madrid er 1-0 yfir en Cristiano Ronaldo skoraði markið úr vítaspyrnu á 23. mínútu. Endi leikurinn svona fara Evrópumeistararnir áfram á marki skoruðu á útivelli.

Undarlegt atvik átti sér stað í fyrri hálfleik þegar Patrice Evra, vinstri bakverði Juventus, lenti saman við boltastrák sem neitaði að láta Frakkann fá boltann þegar Juventus átti hornspyrnu.

Boltastrákurinn, sem virðist reyndar vera í eldri kantinum miðað við aðra kollega hans í stéttinni, var með almenn leiðindi og gaf sig ekki þótt Evra reyndi að ná boltanum af honum.

Atvikið má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×