Fótbolti

Real Madrid aldrei komist áfram eftir að hafa tapað fyrri undanúrslitaleiknum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmenn Real Madrid voru vonsviknir í leikslok.
Leikmenn Real Madrid voru vonsviknir í leikslok. vísir/getty
Real Madrid féll sem kunnugt er úr leik fyrir Juventus í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Real Madrid, sem vann keppnina í fyrra, tapaði fyrri leiknum á Juventus Stadium 2-1 og náði svo aðeins jafntefli gegn ítölsku meisturunum á Santiago Bernabeu í kvöld.

Real Madrid hefur aldrei í sögu Meistaradeildarinnar, og forvera hennar Evrópukeppni meistaraliða, komist áfram í úrslitaleikinn eftir að hafa tapað fyrri leiknum í undanúrslitunum.

Þetta er í ellefta sinn sem Real Madrid fellur úr leik í undanúrslitum Meistaradeildarinnar eftir að hafa tapað fyrri leiknum.


Tengdar fréttir

Tévez tryggði Juve sigur á Real Madrid | Sjáið mörkin

Ítölsku meistararnir í Juventus unnu 2-1 sigur á Evrópumeisturum Real Madrid fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta en seinni leikurinn fer fram á heimavelli Real Madrid í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×