Íslenski boltinn

Nýliðarnir byrja á erfiðum leikjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stjarnan varð tvöfaldur meistari á síðustu leiktíð.
Stjarnan varð tvöfaldur meistari á síðustu leiktíð. vísir/valli
Nýliðarnir í Pepsi-deild kvenna fá alvöru próf strax í fyrsta leik í dag þegar KR og Þróttur heimsækja tvö efstu liðin í fyrra en þeim er jafnframt spáð efstu sætunum í ár. KR mætir meisturum Stjörnunnar í Garðabæ og Íslandsmeistaraefnin í Breiðabliki taka á móti Þrótti.

Það vakti athygli fyrr í vikunni þegar Breiðabliki var spáð titlinum en ekki Íslands- og bikarmeisturum Stjörnunnar sem höfðu unnið tvo úrslitaleiki við Blika á rúmri viku með markatölunni 7-1.

Blikar hafa beðið í tíu ár eftir sextánda Íslandsmeistaratitlinum en fyrirliðar, þjálfarar og forráðamenn deildarinnar hafa meiri trú á Blikum heldur en Stjörnuliðinu sem hefur unnið stóran titil fjögur tímabil í röð og vann tvöfalt í fyrsta sinn síðasta sumar.

Stjörnuliðið hefur misst lykilmenn en fékk til sín efnilegasta leikmann deildarinnar á síðasta sumar, Guðrúnu Karítas Sigurðardóttur frá ÍA.

Stjarnan missti landsliðsmiðvörðinn Glódísi Perlu Viggósdóttir og fyrir­liðann Ásgerði Stefaníu Baldursdóttur og óvissan er um hvaða áhrif það hefur á hina sterku vörn Stjörnuliðsins sem fékk á sig aðeins 16 mörk í 36 deildarleikjum tvö síðustu sumur.

Markadrottningin Harpa Þorsteinsdóttir er á sínum stað en hún hefur skorað 55 mörk í 36 leikjum síðustu tvö sumur.

Flestir búast áfram við einvígi á milli Stjörnunnar og Breiðabliks. Selfoss og Þór/KA verða í næstu sætum samkvæmt spánni en bæði lið hafa þó misst sterka leikmenn. Fylkisliðið vakti mikla athygli sem nýliði í fyrra og nú er að sjá hvort Jörundur Áki Sveinsson geti komið liðinu enn ofar í töflunni.

Eyjakonum er spáð sjötta sæti eða sæti ofar en Valsliðinu sem er á tímamótum og hefur aldrei verið spáð neðar. KR verður sá nýliði sem nær að halda sæti sínu á kostnað Aftureldingar sem er spáð falli ásamt nýliðum Þróttar.

Leikir dagsins:

Valur-Afturelding, Breiðablik-Þróttur R., Stjarnan-KR og Fylkir-Selfoss (allir klukkan 14.00) og Þór/KA- ÍBV (klukkan 15.30).


Tengdar fréttir

Stelpurnar byrja innanhúss

Pepsi-deild kvenna í fótbolta hefst með heilli umferð á fimmtudaginn en ekki allir leikirnir fara fram utanhúss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×