Fótbolti

Sjáðu markið hjá Jóni Daða og stoðsendinguna hjá Steinþóri Frey

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jón Daði Böðvarsson skoraði mark í gær.
Jón Daði Böðvarsson skoraði mark í gær. mynd/viking-fk.no.
Viking Stavanger er í sjöunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 2-0 útisigur á Haugesund í gær.

Steinþór Freyr Þorsteinsson var eini Íslendingurinn í byrjunarliðinu í gær, en Jón Daði Böðvarsson kom inn af bekknum á 65. mínútu.

Björn Daníel Sverrisson verður frá keppni meira og minna allt tímabilið vegna meiðsla og þá er Indriði Sigurðsson, fyrirliði, einnig frá vegna meiðsla.

Steinþór Freyr lagði upp fyrra markið sem Yann-Erik de Lanlay skoraði á níundu mínútu. Steinþór hefði mögulega fengið vítaspyrnu hefði sendingin ekki heppnast þar sem hann var keyrður niður í teignum.

Jón Daði innsiglaði svo sigur Viking með marki af stuttu færi eftir aukaspyrnu Magne Hoseth á 85. mínútu leiksins.

Jón Daði er búinn að leggja upp tvö mörk og skora eitt í síðustu þremur leikjum Viking í deild og bikar.

Það helsta úr leiknum má sjá í myndbandinu hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×