Fótbolti

Margrét Lára skoraði annan leikinn í röð í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Margrét Lára í eldlínunni.
Margrét Lára í eldlínunni. vísir/stefán
Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fyrra mark Kristianstad í 2-1 sigri á Mallbacken í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Margrét Lára Kristianstad yfir eftir 56. mínútna leik, en sex mínútum síðar jöfnuðu gestirnir.

Ida Guehai tryggði svo Kristianstad sigurinn með marki fjórum mínútum fyrir leikslok eftir sendingu frá Elísu Viðarsdóttur og lokatölur 2-1.

Margrét Lára spilaði í 82 mínútur, en systir hennar og samherji, Elísa Viðarsdóttir, spilaði allan leikinn. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar Kristianstad.

Íslendingaliðið skýst upp í þriðja sætið með sigrinum, en fyrir ofan þær eru tvö önnur Íslendingalið; Eskilstuna og Rosengård.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×