Innlent

Fundað í Karphúsinu í dag

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Félögin funduðu í tæpa sjö klukkustundir á föstudag og var jákvætt hljóð í samningamönnum eftir að þeim fundi lauk.
Félögin funduðu í tæpa sjö klukkustundir á föstudag og var jákvætt hljóð í samningamönnum eftir að þeim fundi lauk.
Samninganefndir VR og Flóabandalagsins funda með Samtökum atvinnulífsins í húsnæði ríkissáttasemjara eftir hádegi í dag. Félögin funduðu í tæpa sjö klukkustundir á föstudag og var jákvætt hljóð í samningamönnum eftir að þeim fundi lauk.

Samtök atvinnulífsins hafa boðið VR og Flóabandalaginu svipaðan samning og stendur Starfsgreinasambandinu til boða en atvinnurekendur segja að samningurinn hljóði upp á tuttugu og þriggja komma fimm prósenta hækkun dagvinnulauna á næstu þremur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×