Íslenski boltinn

Pepsi-mörkin | 3. þáttur

Þriðji þáttur Pepsi-markanna var á dagskrá á Stöð 2 Sport í gærkvöldi, en þar var farið yfir þriðju umferðina í Pepsi-deildinni.

Hörður Magnússon stýrir þáttunum að vanda, en í gær var hann með Hjörvar Hafliðason og Hjört Hjartarson sér til aðstoðar.

Alls voru 13 mörk skoruð í leikjunum sex, en fjórða umferðin verður svo leikin í heild sinni á miðvikudaginn.

Líkt og í fyrra verður styttri útgáfa af Pepsi-mörkunum birt á Vísi daginn eftir frumsýningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×