Fótbolti

Søderlund með tvö gegn Rúnari og lærisveinum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Søderlund í landsleik með Noregi.
Søderlund í landsleik með Noregi. vísir/getty
Lilleström tapaði fyrir Rosenborg á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en öll þrjú mörkin komu í fyrri hálfleik.

Fyrrum FH-ingurinn Alexander Söderlund skoraði tvö af þremur mörkum Rosenborg í fyrri hálfleik, en Paal Andre Helland bætti við einu marki.

Staðan var 3-0 í hálflelik og ekki urðu mörkin fleiri í síðari hálfleik.

Hólmar Örn Eyjólfsson spilaði allan tíman í vörn Rosenborg, en Finnur Orri Margeirsson lék allan leikinn fyrir Lilleström.

Árni Vilhjálmsson var ekki í leikmannahóp Lilleström líklega vegna meiðsla, en Rúnar Kristinsson þjálfar Lilleström.

Lilleström er með sex stig eftir sjö leiki, en Rosenborg er á toppnum; með sex sigra og eitt jafntefli eftir sjö leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×