Fred í föstudagsfíling í fyrsta sigri Lilleström Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. apríl 2015 19:54 Ingvar Jónsson varði víti í sínum fyrsta leik í norsku úrvalsdeildinni. vísir/daníel
Rúnar Kristinsson og lærisveinar hans unnu sinn fyrsta leik í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld þegar liðið valtaði yfir nýliða Mjöndalen á útivelli, 4-1. Árni Vilhjálmsson og Finnur Orri Margeirsson voru báðir í byrjunarliði Lilleström sem lenti undir á 10. mínútu, 1-0. Lilleström jafnaði metin á 39. mínútu, en markið skoraði framherjinn með skemmtilega nafnið; Fred Friday. Árni Vilhjálmsson lagði upp markið fyrir félaga sinn, 1-1. Fred var svo sannarlega í föstudagsfíling, en hann bætti við öðru marki Lilleström á 49. mínútu og kom liðinu í 3-1 á 61. mínútu. Þrenna hjá Friday. Moryke Fofana innsiglaði svo stórsigur Lilleström, 4-1, með marki á 68. mínútu, en Rúnar og hans menn komust upp í 10. sætið með sigrinum. Lilleström er með fimm stig. Ingvar Jónsson, besti markvörður Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð, var í byrjunarliði Start í fyrsta skipti í kvöld þegar liðið tapaði fyrir Rosenborg, 3-2. Ingvar varði víti frá fyrrverandi FH-ingnum Alexander Söderlund á 74. mínútu í stöðunni 1-1, en Söderlund skoraði úr frákastinu, 2-1. Liam Henderson bætti við marki fyrir Rosenborg, 3-1, en Kristoffer Ajer minnkaði muninn fyrir gestina í Start, 3-2. Guðmundur Kristjánsson og Matthías Vilhjálmsson voru báðir í byrjunarliði Start, en Hólmar Örn Eyjólfsson stóð vaktina í vörn Rosenborg sem er á toppnum með þrettán stig. Start er í ellefsta sæti með fimm stig.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira