Fótbolti

Messi klár í slaginn á ný

Anton Ingi Leifsson skrifar
Messi í eldlínunni.
Messi í eldlínunni. vísir/getty
Lionel Messi, hinn frábæri leikmaður Barcelona, hefur verið gefið grænt ljós á að spila um helgina. Messi hefur átt í vandræðum undanfarnar vikur vegna meiðsla.

Messi hefur glímt við meiðsli síðan í El Clásico leiknum, en hann hefur ekki náð fullri heilsu síðan. Hann missti meðal annars af leikjum með argentíska landsliðinu á dögunum.

Nú hefur læknalið Barcelona gefið Messi grænt ljós að spila, en Katalóníuliðið mætir Celta Vigo á útivelli um helgina.

Argentínumaðurinn hefur verið frábær fyrir Barcelona á tímabilinu, en Barcelona er með fjögurra stiga forskot á toppnum. Messi hefur skorað 32 mörk í 28 leikjum á þessu tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×