Fótbolti

Alfreð lagði upp jöfnunarmark Real Sociedad

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð hefur komið að tveimur mörkum í síðustu tveimur leikjum Real Sociedad.
Alfreð hefur komið að tveimur mörkum í síðustu tveimur leikjum Real Sociedad. Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason lagði upp jöfnunarmark Real Sociedad gegn Málaga í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Lokatölur 1-1.

Recio kom Málaga yfir á 55. mínútu og þannig var staðan fram á 83. mínútu þegar Rubén Pardo jafnaði metin eftir sendingu frá Alfreð sem hafði komið inn á sem varamaður sex mínútum áður.

Þetta var fyrsta stoðsending Alfreðs í búningi Sociedad en hann skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir félagið í 3-1 sigri á Córdoba um þarsíðustu helgi.

Alfreð og félagar eru í 10. sæti deildarinnar með 37 stig en Sociedad hefur fengið 10 stig af 12 mögulegum í síðustu fjórum deildarleikjum sínum.


Tengdar fréttir

Biðin á enda hjá Alfreð

Alfreð Finnbogason skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Real Sociedad í 3-1 sigri liðsins á Córdoba í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Alfreð: Þetta mark mun gefa mér mikið

Alfreð Finnbogason opnaði markareikning sinn í spænsku úrvalsdeildinni í síðasta leiknum sínum með Real Sociedad fyrir landsliðsferðina til Kasakstan og hann segir markið gera honum gott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×