Fótbolti

Haukur Heiðar byrjar vel í Svíþjóð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haukur Heiðar lék með KR um þriggja ára skeið.
Haukur Heiðar lék með KR um þriggja ára skeið. vísir/vilhelm
Haukur Heiðar Hauksson þreytti frumraun sína í sænsku úrvalsdeildinni þegar AIK vann Halmstads 2-1 á Vinavöllum í fyrstu umferð deildarinnar í dag.

Haukur, sem kom til AIK frá KR síðasta haust, lék allan leikinn í stöðu hægri bakvarðar.

Henok Goitom og Johan Blomberg skoruðu mörk AIK í seinni hálfleik.

Kristoffer Fagercrantz minnkaði muninn fyrir Halmstads sjö mínútum fyrir leikslok en nær komust gestirnir ekki.

Næsti leikur Hauks og félaga er gegn Malmö á útivelli á fimmtudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×