Fótbolti

Jafnt í Kaupmannahafnarslag

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Björn Bergmann lék síðustu 19 mínúturnar í dag.
Björn Bergmann lék síðustu 19 mínúturnar í dag. vísir/getty
Bröndby og FCK skildu jöfn, 0-0, í Kaupmannahafnarslag í fyrri leik dagsins dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á sem varamaður í liði FCK á 71. mínútu en Rúrik Gíslason sat allan tímann á varamannabekknum.

Hólmbert Aron Friðjónsson var ekki í leikmannahópi Bröndby sem er komið upp fyrir Nordsjælland í 4. sæti deildarinnar.

FCK er hins vegar í 2. sæti, átta stigum á eftir toppliði Midtjylland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×