Körfubolti

Ólafur: Tel mig eiga jafnmikið erindi í landsliðið og allir aðrir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafur Ólafsson hefur skemmt öllum í Dominos-deildinni í mörg ár.
Ólafur Ólafsson hefur skemmt öllum í Dominos-deildinni í mörg ár. vísir/valli
Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, samdi í gær við franska félagið St. Clement sem spilar í D-deildinni í Frakklandi en berst um að komast upp í deildina fyrir ofan.

Ólafur hefur spilað allan sinn feril með Grindavík þar sem hann er uppalinn, en hann hlakkar til að flytja til Frakklands.

„Ég er aðeins búinn að skoða þetta lið en ekki séð neinar tölur. Ég er búinn að skoða hvar liðið er. Þetta er á frægum ferðamannastað og þarna rétt hjá er fræg sólarströnd,“ segir Ólafur við vísi.

Ólafur fær ekkert sumarfrí frekar en aðrir íslenskir körfuboltamenn. Hann ætlar sér að vera í lokahóp íslenska landsliðsins sem fer á EM í Berlín í sumar en þetta verður í fyrsta sinn sem Ísland spilar á stórmóti í körfubolta.

„Undirbúningurinn hefst í kvöld [gærkvöldi],“ segir Ólafur. „Ég er að fara á æfingu með eldri bróður mínum og svo hefjast lyftingaæfingar í þessum mánuði. Ég ætla að undirbúa mig sem best.“

„Ég kann leikkerfið hjá landsliðinu og svo verður bara gaman ef einhverju nýju verður bætt við. Ég ætla bara að mæta til leiks í sem bestu líkamlegu ástandi.“

Ólafur var í hópnum í síðustu undankeppni en samkeppnin verður mun meiri í sumar. Kristófer Acox mætir til leiks úr bandaríska háskólaboltanum sem og Frank Aron Booker. Þá gæti verið að Jakob Örn Sigurðarson gefi aftur kost á sér.

„Ég hef engar áhyggjur af því. Ég tel mig eiga alveg jafnmikinn möguleika og allir aðrir að komast í þeta landslið. Mitt markmið er að fara á EM og vonandi verð ég líka með á Smáþjóðaleikunum,“ segir Ólafur sem er bara spenntur fyrir viðbótunum við hópinn.

„Ég er mjög spenntur fyrir því að sjá litla Frank. Þetta er í fyrsta skipti sem svona ungur bandarískur Íslendingur kemur í landsliðið. Ef hann getur hjálpað okkur er það bara frábært. Svo vitum við allir hvað Kristófer getur. Hann er algjört skrímsli sem er eflaust ekkert auðvelt að eiga við.“

„Svo má ekki gleyma ungu strákunum hérna heima eins og Degi Kár hjá Stjörnunni og Jóni Axel hjá okkur. Það verður spennandi að sjá hvað gerist í sumar,“ segir Ólafur Ólafsson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×