Fótbolti

Nordsjælland tapaði stigum gegn botnliðinu | Guðmundur lagði upp mark

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðmundur lagði upp fyrra mark Nordsjælland.
Guðmundur lagði upp fyrra mark Nordsjælland. mynd/fcn.dk
Ólafur Kristjánsson og lærisveinar hans í Nordsjælland máttu sætta sig við jafntefli, 2-2, gegn botnliði Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

David Moberg-Karlsson kom Nordsjælland yfir strax á 4. mínútu eftir stoðsendingu frá Guðmundi Þórarinssyni. Morten Beck Andersen sá hins vegar til þess að Silkeborg fór með forystu inn í hálfleikinn en hann skoraði tvö mörk á tveimur mínútum undir lok fyrri hálfleiks.

Uffe Bech tryggði Nordsjælland stig þegar hann jafnaði metin í 2-2 á 70. mínútu. Bech hafði komið inn á sem varamaður átta mínútum áður fyrir Guðjón Baldvinsson.

Guðmundur fór af velli í hálfleik vegna meiðsla. Rúnar Alex Rúnarsson og Adam Örn Arnarson sátu allan tímann á varamannabekknum hjá Nordsjælland.

Stigið skilaði Nordsjælland upp í 4. sætið en lærisveinar Ólafs eru aðeins tveimur stigum frá 3. sætinu sem gefur þátttökurétt í Evrópudeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×