Fótbolti

Eggert lék allan leikinn í enn einu tapi Vestsjælland

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eggert er kominn aftur á ferðina eftir erfið meiðsli.
Eggert er kominn aftur á ferðina eftir erfið meiðsli. mynd/vestsjælland
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leikinn fyrir Vestsjælland sem tapaði 0-1 fyrir Bröndby á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Eggert spilaði á miðjunni í dag en hann hefur leikið alla fimm leiki Vestsjælland eftir áramót.

Christian Nörgaard skoraði eina mark leiksins á 39. mínútu.

Hólmbert Aron Friðjónsson var ekki í leikmannahópi Bröndby sem er í 4. sæti deildarinnar með 34 stig.

Vestsjælland er hins vegar í 11. og næstneðsta sæti, 10 stigum frá öruggu sæti.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×