Fótbolti

Biðin á enda hjá Alfreð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð og félagar eru komnir í upp í 9. sæti spænsku deildarinnar.
Alfreð og félagar eru komnir í upp í 9. sæti spænsku deildarinnar. vísir/getty
Alfreð Finnbogason skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Real Sociedad í 3-1 sigri liðsins á Córdoba í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Alfreð var búinn að spila í 580 mínútur fyrir Sociedad í deildinni án þess að skora en hann náði loks að brjóta ísinn í San Sebastián í kvöld.

Landsliðsframherjinn kom inn á sem varamaður á 89. mínútu og aðeins þremur mínútum síðar skoraði hann þriðja mark Sociedad eftir sendingu frá Carlos Vela.

Florin Andone kom Córdoba, sem er í neðsta sæti spænsku deildarinnar, yfir á 12. mínútu en þá var botnliðið búið að missa varnarmanninn Aleksandar Pantic af velli með rauða spjaldið. Tveir félagar hans fuku svo af velli í seinni hálfleik en Córdoba lauk leik með aðeins átta leikmenn inni á vellinum.

Imanol Agirretxe jafnaði metin fyrir Sociedad á 31. mínútu og Gonzalo Castro kom Böskunum svo yfir á 75. mínútu. Alfreð rak svo síðasta naglann í kistu botnliðsins í uppbótartíma, eins og áður sagði.

Þetta var þriðji sigur Sociedad í röð en lærisveinar David Moyes eru nú komnir upp í 9. sæti deildarinnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×