Auðvelt hjá Frökkum gegn Danmörku Anton Ingi Leifsson skrifar 29. mars 2015 21:00 Oliver Giroud, annar markaskoraranna, í baráttunni í kvöld. vísir/getty
Alexandre Lacazette og Oliver Giroud skoruðu mörkin í 2-0 sigri Frakklands á Danmörku í vináttulandsleik í knattspyrnu sem fram fór í Frakklandi. Leikurinn byrjaði fjörlega og fyrsta markið kom eftir fjórtán mínútna leik. Alexandre Lacazette, markahrókur Lyon, kom Frökkum þá yfir, en hann fylgdi eftir skoti Antonie Griezmann. Frakkar voru betri aðilinn í fyrri hálfleik og Giroud skallaði meðal annars boltann yfir úr góðu færi. Frakkarnir tvöfölduðu þó forystuna fyrir hlé. Geoffrey Kondogbia átti allan heiðurinn. Hann óð í gegnum vörn Dana, lagði boltann svo skemmtilega á Giroud sem kláraði færið vel. 2-0 í hálfleik og Danirnir í veseni. Síðari hálfleikur var ekki mikið fyrir augað, en Frakkarnir voru sterkari. Þeir gerðu meðal annars tilkall til vítaspyrnu, en Ivan Kružliak, dómari leiksins, dæmdi ekkert. Leikurin fjaraði svo út og urðu lokatölur 2-0 sigur Frakklands. Frakkar eru gestgjafar á Evrópumótinu sumarið 2016 þannig þeir taka ekki þátt í undankeppnum. Danir sátu hjá í sínum riðli þessa helgina.Byrjunarlið Dana (4-3-3): Schmeichel; L. Jacobsen, Sviatchenko, Kjaer, Boilesen; Eriksen, Wass, Kvist, Krohn-Dehli; Bendtner, Vibe.Byrjunarlið Frakklands (4-2-3-1): Ruffier; Jallet, Varane, Koscielny, Tremoulinas; Schneiderlin, Kondogbia; Lacazette, Payet, Griezmann; Giroud.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1 og NBA á Páskasunnudegi Sport Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Fótbolti Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Körfubolti Fleiri fréttir ÍA og Vestri mætast inni Í beinni: Leicester - Liverpool | Geta farið langt með að tryggja sér titilinn Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Arsenal í erfiðri stöðu eftir haítískt sigurmark Mögnuð endurkoma mikilvæg í toppbaráttunni Ísak bombaði inn úr þröngu færi Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Sjá meira