Íslenski boltinn

FH samdi við Senegalann

Amath André Diedhiou spilar með FH næstu tvö árin.
Amath André Diedhiou spilar með FH næstu tvö árin. mynd/FH
FH-ingar halda áfram að styrkja sig fyrir átökin í Pepsi-deildinni í sumar.

Nú er FH búið að semja við Senegalann Amath André Diedhiou. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.

Þessi strákur spilaði með FH í fótbolta.net-mótinu í janúar og er núna með FH á æfingamóti erlendis.

Það dylst engum að FH ætlar sér að næla í þann stóra í sumar enda hefur liðið farið mikinn á leikmannamarkaðnum.

FH er einnig búið að fá Bjarna Þór Viðarsson, Belgann Jeremy Serwy, Guðmann Þórisson og Þórarinn Inga Valdimarsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×