Var McDonald's stjörnuleikmaður en fór svo að vinna á McDonald's 13. mars 2015 23:30 David Harrison. vísir/getty
David Harrison var valinn númer 29 í nýliðavali NBA-deildarinnar árið 2004. Hann þénaði yfir 600 milljónir á fjórum árum í NBA-deildinni. Níu árum eftir að hann var valinn í NBA-deildinni var hann farinn að vinna á McDonald's. Hann var McDonald's stjörnuleikmaður áður en hann komst í NBA-deildina þar sem honum var spáð björtum frama. Eftir að hafa misst samning sinn við Indiana Pacers árið 2008 fór hann til Kína og spilaði þar í þrjú ár. Eftir það hrundi veröld hans og allar milljónirnar eru horfnar í dag.Harrison í baráttu við Shaquille O'Neal.vísir/getty„Er ég fór að vinna á McDonald's skammaðist ég mín fyrir það hvar ég var staddur í lífinu. Það verða samt allir að vinna einhvers staðar. Ég á tvö börn og þeim er alveg sama hvar ég vinn. Þau þurfa bara að fá að borða," sagði Harrison. „Húsið mitt var komið á uppboð og það komu menn að reyna að taka bílinn minn af mér. Það var allt í tómu tjóni hjá mér." Harrison var á meðal þeirra sem fóru mikinn í slagsmálum Indiana og Detroit árið 2004. Hann kýldi 67 ára gamlan mann í stúkunni og sjálfur var hann laminn og fékk stól í bakið. Hann hefur verið að æfa með hinum og þessum áhugamannaliðum upp á síðkastið en ekki fengið símtal frá NBA-liði í þrjú ár. Hann æfði með Dallas árið 2012 en fékk ekki samning. Orðinn 32 ára gamall þá hefur Harrison misst trúna á að komast aftur að í NBA-deildinni. Hann langar að klára háskóla þar sem hann á nokkrar einingar eftir. Hann hefur aftur á móti ekki efni á því að fara aftur í skóla.
NBA Mest lesið Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Íslenski boltinn Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Fótbolti Fleiri fréttir Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Sjá meira