Tvær þrennur í Lengjubikarnum í dag | Myndband Anton Ingi Leifsson skrifar 15. mars 2015 23:15 Glenn var í stuði í dag. vísir/
ÍBV, Selfoss og Víkingur Reykjavík unnu öll sína leiki í Lengjubikar karla A-deild, en leikið var í mótinu í dag. ÍBV átti í engum vandræðum með fyrstu deildarlið BÍ/Bolungarvík. Jonathan Glenn gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu og þeir Bjarni Gunnarsson og Ian Jeffs bættu við sitthvoru markinu fyrir Eyjapilta. ÍBV er með sex stig eftir fjóra leiki, en þeir fengu þrjú stig þegar Blikar tefldu fram ólöglegum leikmanna í leik liðanna á dögunum. Því var þetta fyrsti almennilegi sigur ÍBV í mótinu. BÍ/Bolungarvík er án stiga eftir fyrstu fimm leikina með markatöluna 0-18. Fyrstu deildarliðin Fram og Selfoss mættust einnig í Egilshöll í dag. Elton Barros lék á alls oddi og skoraði þrennu, rétt eins og Glenn, en Arnór Daði Aðalsteinsson jafnaði þó metin fyrir Fram á tímapunkti með smekklegu marki. Fram er án stiga eftir fjóra leiki með markatöluna 2-8, en Selfoss hefur spilað fjóra leiki og fengið í þeim sjö stig. Víkingur Reykjavík sigraði svo Fjölni í síðasta leik dagsins. Haukur Baldvinsson skoraði fysrta markið eftir undirbúning Pape Mamadou Faye og Rolf Toft bætti við öðru marki stuttu síðar. Bæði mörkin komu á fyrstu tuttugu mínútum leiksins. Eftir sigurinn eru Víkingar með tíu stig eftir fimm leiki, en Fjölnir sex stig eftir fjóra leiki. Hér að neðan má sjá öll úrslit og markaskorara og einnig má sjá mörkin úr leik ÍBV og Bí/Bolungarvíkur.ÍBV - BÍ/Bolungarvík 5-0 1-0 Jonathan Glenn (18.), 2-0 Bjarni Gunnarsson (26.), 3-0 Jonathan Glenn (45.), 4-0 Ian Jeffs (49.), 5-0 Jonathan Glenn (80.).Fram - Selfoss 1-3 0-1 Elton Barros (6.), 1-1 Arnór Daði Aðalsteinsson, 1-2 Elton Barros (64.), 1-3 Elton Barros (90.).Víkingur R. - Fjölnir 2-0 1-0 Haukur Baldvinsson, 2-0 Stefán Þór Pálsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ein stærstu og óvæntustu skipti sögunnar Körfubolti „Íslensku konurnar sem breyttu CrossFit heiminum að eilífu“ Sport Snorri Steinn heldur með Degi: „Ég vona innilega að hann vinni“ Handbolti Rashford við það að ganga í raðir Aston Villa Fótbolti Grein Morgunblaðsins til skammar Sport United sækir annað ungstirni frá Arsenal Fótbolti FH fær markahæsta Selfyssing sögunnar Handbolti Hákon lagði upp og Lille stökk upp um tvö sæti Fótbolti Snorri Steinn um ummæli Gísla: „Auðvitað ertu vonsvikinn“ Handbolti Ísak Bergmann með mark að hætti pabba síns Fótbolti Fleiri fréttir Berglind Björg strax byrjuð að skora fyrir Blika Guy Smit frá KR til Vestra Ekki hrifinn af tvöfaldri sekt frá KSÍ: „Af hverju að gera það?“ Íslandsmeistararnir unnu Þungavigtarbikarinn Vigdís Lilja seld til Anderlecht KR vann fertugasta Reykjavíkurmeistaratitilinn annað árið í röð KR Reykjavíkurmeistari eftir öruggan sigur á Val Páll sækist ekki eftir endurkjöri hjá KR Norðurálsmótið fagnar fjörutíu ára afmæli í ár Atli Guðna auglýsir eftir strákum í fótbolta: „Markmiðið að hafa gaman“ Tvö af þremur félögum í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna eru frá Garðabæ Einbeittur brotavilji Víkinga ÍBV fær stóran og sterkan miðvörð Mætti Barcelona í byrjun mánaðar en spilar með Fram í Bestu í sumar Ætlar að taka annað fótboltasumar á „besta staðnum á Íslandi“ Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Þróttur fær aðra úr Árbænum Seldu treyjur Orra á uppboði fyrir fjölskyldu Maciej Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Víkingar fá mikinn liðsstyrk Valur semur við norskan miðvörð Víkingar með ólöglegan leikmann á móti KR Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Kári segir Atla geta orðið „unplayable“ Atli á leið til Víkings Láki sækir leikmann sem hann þekkir vel Eyþór sóttur í Fylki: „Loksins einhver að koma að leika við þig“ Nýju þjálfararnir byrjuðu á 8-0 sigri á KR Fengu Gumma Ben til að lýsa og stjörnur til að spila í styrktarleik fyrir vin sinn Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals Sjá meira