Leit að MH370 mögulega hætt innan nokkurra vikna Atli Ísleifsson skrifar 1. mars 2015 23:57 239 farþegar og áhafnarmeðlimir voru um borð í vélinni sem hvarf af ratsjám 8. mars á síðasta ári. Vísir/AFP
Leit að MH370, vél malasíska flugfélagsins Malaysian Airlines sem hvarf af ratsjám þann 8. mars á síðasta ári verður mögulega hætt innan fáeinna vikna. Aðstoðarforsætisráðherra Ástralíu segir leitina ekki geta haldið áfram endalaust. Aðstoðarforsætisráðherrann Warren Truss segir að viðræður séu þegar hafnar milli fulltrúa stjórnvalda í Ástralíu, Kína og Malasíu um framhald leitarinnar. Ekkert hefur spurst til vélarinnar sem var á leið frá malasísku höfuðborginni Kuala Lumpur, áleiðis til kínversku höfuðborgarinnar Beijing. Talið er að vélin hafi flogið mörg þúsund kílómetra af leið áður en hún hrapaði einhvers staðar í Indlandshafi, en 239 farþegar og áhafnarmeðlimir voru um borð. Búist er við að leit á um 60 þúsund ferkílómetra hafsvæði, um 1.600 kílómetrum vestur af áströlsku borginni Perth, verði lokið í maí, en sérfræðingar telja líklegast að vélin hafi hrapað á umræddu svæði. Truss segir nauðsynlegt að komast brátt að niðurstöðu um hvort stækka beri leitarsvæðið enn frekar eða hætta leit, finnist ekki leifar úr vélinni á allra næstu vikum.
Flugvélahvarf MH370 Mest lesið Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Innlent Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Innlent Dæmdir í tengslum við einn stærsta stuld Íslandssögunnar Innlent Albanska manninum fylgt úr landi í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira