Fótbolti

Finnur kominn á blað með Lillestrøm

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Finnur kom til Lillestrøm frá FH.
Finnur kom til Lillestrøm frá FH. Mynd/Lillestrøm
Finnur Orri Margeirsson skoraði eitt marka Lillestrøm þegar liðið vann 3-0 sigur á Strømmen í æfingaleik í gær.

Finnur Orri var í byrjunarliði Lillestrøm, líkt og Árni Vilhjálmsson en þeir gengu til liðs við norska félagið fyrr í vetur. Rúnar Kristinsson er þjálfari Lillestrøm en honum til aðstoðar er Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Mark Finns kom á 88. mínútu en það má sjá með því að smella hér.

Finnur hefur ekki verið tíður gestur á markalistanum í gegnum tíðina en hann skoraði aðeins eitt mark í 171 deildar-, bikar- og Evrópuleikjum með Breiðabliki.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×