Fótbolti

Ancelotti: Ronaldo mátti alveg skemmta sér eftir tapið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ronaldo skemmti sér eftir 4-0 tap.
Ronaldo skemmti sér eftir 4-0 tap. vísir/getty
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, segist ekkert kippa sér upp við það að að Cristiano Ronaldo hafi haldið upp á afmælið sitt eftir 4-0 tap gegn Atlético í borgarslagnum um síðustu helgi.

Ronaldo hefur verið mikið gagnrýndur fyrir að aflýsa ekki afmælinu, en umboðsmaður kappans, Jorge Mendes, kom honum til varnar í vikunni.

Hann sagði að afmælið hefði verið skipulagt með mánaðar fyrirvara og fjölskyldumeðlimir Ronaldo frá Portúgal hafi flogið til Madrídar sérstaklega til að mæta í veisluna.

„Veislan skiptir mig engu máli. Ég hef aldrei verið að dæma menn fyrir hvað þeir gera í einkalífinu og ætla ekki að fara að byrja á því núna,“ segir Ancelotti.

„Ég efast ekki um hversu mikill atvinnumaður Ronaldo er, en einkalíf hvers leikmanns snýr bara að honum. Ef ég væri að biðja menn um afsökunarbeiðnir væri það brot á friðhelgi einkalífsins. Ég dæmi þá bara sem fótboltamenn og hvað þeir gera inn á vellinum,“ segir Carlo Ancelotti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×