Fótbolti

Sjáðu frábært mark Suarez

Anton Ingi Leifsson. skrifar
Suarez og Neymar fagna.
Suarez og Neymar fagna. Vísir/Getty
Luis Suarez skoraði fimmta mark Barcelona í dag í auðveldum 5-0 sigri liðsins á Levante.

Með sigrinum er Barcelona einu stigi á eftir Real Madrid þegar fimmtán leikir eru eftir, en mark Suarez var heldur betur af dýrari gerðinni.

Hann fékk fyrirgjöf frá vinstri og klippti boltann afar skemmtilega í netið.

Markið smekklega má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×