Tvö af þremur með tap á bakinu í Höllina | Hvað gerir Stjarnan í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2015 15:30 Justin Shouse. Vísir/Valli
Lokaleikur 18. umferðar Dominos-deildar karla í körfubolta fer fram í Grafarvoginum í kvöld þegar Fjölnir tekur á móti Stjörnunni í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3. Leikurinn hefst klukkan 19.15. Þetta er síðasti leikur Stjörnuliðsins fyrir bikarúrslitaleikinn á móti KR á laugardaginn en hingað til hefur ekki gengið alltof vel hjá bikarúrslitaliðunum í síðasta leiknum sínum fyrir bikarúrslitin. Kvennalið Grindavíkur og karlalið KR töpuðu bæði lokaleik sínum fyrir leikinn í Laugardalshöllinni en vængbrotið lið Keflavíkur vann hinsvegar öruggan sigur í síðasta leiknum sínum fyrir stóra leikinn um næstu helgi. Grindavíkurkonur töpuðu 82-68 á útivelli á móti Val á laugadaginn þar sem hin bandaríska Kristina King skoraði bara fimm stig en KR-ingar töpuðu 87-84 á útivelli á móti Haukum í gær sem var aðeins annað tap liðsins á tímabilinu. Keflavíkurkonur léku án hinnar bandarísku Carmen Tyson-Thomas og fyrirliðans Birnu Valgarðsdóttur þegar þær unnu 69-54 sigur á Hamar. Tyson-Thomas er rifbeinsbrotin og Birna tók út leikbann. Kvennalið Keflavíkur hefur ekki verið með fullskipað lið í síðustu þremur leikjum og það er ekki enn vitað hvort Tyson-Thomas geti eitthvað hjálpað til í Höllinni. Nú er að sjá, hvað fjórða og síðasta liðið sem verður í bikarúrslitunum, gerir sínum lokaleik sem verður á móti Fjölni í Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi í kvöld.
Dominos-deild karla Mest lesið Íþróttafólkið þorir ekki að borða kjöt Sport Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn Körfubolti Hörður undir feldinn Körfubolti Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Enski boltinn Félögin vilja ekki knattspyrnukonur með börn Sport Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin Íslenski boltinn Fresta fleiri fótboltaleikjum vegna fráfalls Francis páfa Fótbolti Luka öflugur og Lakers jafnaði einvígið Körfubolti Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Enski boltinn Dagskráin í dag: Nágrannaslagir í Bestu karla og Bónus kvenna Sport Fleiri fréttir Hörður undir feldinn Luka öflugur og Lakers jafnaði einvígið Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn „Við töpum boltanum í annarri hverri sókn“ Uppgjörið: Valur - Haukar 80-82 | Köstuðu sigrinum frá sér og klikkuðu á vítunum „LeBron þarf að fara í P. J. Washington hlutverkið“ Stólarnir afar öflugir þegar glittir í lokaúrslitin Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Nico Harrison: Áttaði mig ekki á hversu sterk ást þeirra á Luka var Falko áfram í Breiðholtinu Enduðu fimmtán leikja taphrinu í úrslitakeppni NBA „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð „Stemmningin í húsinu hjálpar“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Valur og KR unnu Scania Cup Warriors vann leik sem var eins og frá 1997 „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 95-80 | Yfirburðir í fráköstum og Njarðvíkingar leiða „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Martröðin fullkomnuð fyrir Mavericks Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers KR einum sigri frá því að komast upp í Bónus-deildina Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Sjá meira