Fótbolti

Real náði fjögurra stiga forskoti

Tómas Þór Þórðarson skrifar
James Rodríguez með flugskalla í kvöld.
James Rodríguez með flugskalla í kvöld. vísir/getty
Real Madrid spilaði loks leikinn sem það átti inni í kvöld þegar liðið lagði Sevilla, 2-1.

Madrídarliðið náði með sigrinum fjögurra stiga forskoti á Barcelona í baráttunni um Spánarmeistaratitilinn, en Sevilla er í fjórða sæti.

James Rodríugez kom Real Madrid yfir á 12. mínútu og Jesé bætti við öðru marki á 36. mínútu. Gestirnir minnkuðu muninn með marki Iago Aspas á 80. mínútu en þar við sat.

Cristiano Ronaldo tók út seinni leikinn í leikbanni sínu í kvöld en verður klár í slaginn þegar liðið mætir Atlético Madríd í Madrídarslag um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×