Fótbolti

Ronaldo var reiður en í fullum rétti að djamma eftir rassskellinn gegn Atlético

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Cristiano Ronaldo var lélegastur í tapi gegn Atlético.
Cristiano Ronaldo var lélegastur í tapi gegn Atlético. vísir/gettu
Jorge Mendes, umboðsmaður Cristiano Ronaldo, hefur komið skjólstæðingi sínum til varnar eftir að hann hélt upp á þrítugsafmælið sitt nokkrum klukkustundum eftir 4-0 tap gegn Atlético Madrid.

Real fékk vænan rassskell í borgarslagnum gegn Spánarmeisturunum, en Ronaldo var valinn versti leikmaður leiksins af spænska íþróttablaðinu Marca.

Ronaldo fór beint heim eftir leik, skipti um föt og mætti í þrítugsafmælið sitt sem hann hélt með stæl á veitingahúsi í Madríd. Á meðal gesta voru nokkrir leikmanna liðsins.

Myndbönd og myndir úr veislunni láku á netið og voru stuðningsmenn Real Madrid margir hverjir óhressir með að Ronaldo og liðsfélagar hans væru að gera sér glaðan dag eftir aðra eins útreið og þeir fengu gegn Atlético.

„Ronaldo var mjög reiður. Allir leikmenn sem tapa eru reiðir og menn eins og Ronaldo, sem er besti leikmaður heims, var auðvitað reiður,“ sagði Mendes í útvarpsviðtali við Cadena Ser.

„Staðreyndin er aftur á móti sú að afmælið var skipulegt með mánaðar fyrirvara. Þangað mættu fjölskyldumeðlimir sem þurfti að fljúga til Madrídar. Ronaldo vildi ekki hætta við af virðingu við þá.“

„Það sem er þó ólíðanlegt er að einhver taki myndir og myndbönd í svona einkaveislu. Ronaldo var í rusli eftir tapið og fólk eyddi tveimur tímum í að reyna að kæta hann,“ sagði Jorge Mendes.


Tengdar fréttir

Ronaldo segir Real Madrid betra en Atletico

"Real Madrid er betra en Atletico en við verðum að sanna það á vellinum,“ sagði Cristiano Ronaldo leikmaður Real Madrid eftir tapið gegn Atletico Madrid í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×