Fótbolti

Tap hjá Alfreð og félögum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Moyes og lærisveinar hans máttu sætta sig við tap á heimavelli.
Moyes og lærisveinar hans máttu sætta sig við tap á heimavelli. vísir/getty
Alfreð Finnbogason lék síðustu sex mínútur leiksins þegar Real Sociedad tapaði fyrir Rayo Vallecano á heimavelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Angólamaðurinn Manucho skoraði eina mark leiksins á 81. mínútu.

Þetta var fyrsta tap Sociedad í fimm deildarleikjum, en lærisveinar Davids Moyes sitja í 12. sæti deildarinnar með 19 stig eftir 19 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×