Fótbolti

Valencia batt enda á sigurgöngu Real

Anton Ingi Leifsson skrifar
Valencia fagnar fyrra marki sínu.
Valencia fagnar fyrra marki sínu. Vísir/Getty
Valencia var fyrsta liðið í 23 leikjum til þess að vinna Evrópumeistara Real Madrid. Valencia vann Evrópumeistarana, 2-1, í spænska boltanum í kvöld.

Cristiano Ronaldo skoraði úr vítaspyrnu eftir að boltinn hafi farið í hönd varnarmanns Valencia innan teigs. Þannig var staðan í hálfleik.

Antonio Barragan jafnaði hins vegar metin fyrir Valencia sjö mínútu eftir að síðari hálfleikur hófst og Nicolas Otamendi skoraði sigurmarkið á 65. mínútu.

Þrátt fyrir pressu náðu gestirnir ekki að jafna metin og 2-1 sigur Valencia staðreynd. Real er enn á toppnum, en þeir eru með eins stigs forystu á Barcelona og Atletico Madrid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×