Menning

Fundu fjársjóð í geymslunni

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Harry Potter
Þrjú eintök af fyrstu útgáfu fyrstu bókarinnar fundust í geymslu Bjarts.
Harry Potter Þrjú eintök af fyrstu útgáfu fyrstu bókarinnar fundust í geymslu Bjarts.
Starfsmenn Bjarts ráku upp stór augu við tiltekt í kjallarageymslu forlagsins á dögunum. Meðal þess sem þar dúkkaði upp voru þrjú eintök af fyrstu útgáfunni af Harry Potter, en Bjartur var svo snemma á ferðinni með galdrastrákinn að í þessu fyrsta kasti var hann með sína eigin kápu og sína eigin mynd af söguhetjunni. Þegar að fyrstu endurprentun kom var JK Rowling-veldið að verða til og þá var búið að samræma útlitið á bókunum um allan heim. Safnarar vita af þessari einstæðu kápu og fær Bjartur reglulega fyrirspurnir hvaðanæva að um fyrstu útgáfuna sem var löngu uppseld. Eintökin þrjú eru nú vandlega læst inni í peningaskáp samsteypunnar og nefnd hefur verið skipuð til þess að ákvarða næstu skref. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.